35 manna hópur kom til Siglufjarðar á vegum Fjallasýnar og IcelandAir laugardaginn 9. febrúar sl. og heimsótti Síldarminjasafnið á Siglufirði. Hópurinn heimsótti öll þrjú safnhús Síldarminjasafnsins og fékk þar að bragða á síld og Brennivíni, ásamt því að kynnast sögu staðarins og þeim möguleikum sem safnið býður ferðamönnum og hópum upp á. Að safnaheimsókn lokinni var haldið á Hannes Boy þar sem snæddur var hádegisverður undir harmónikkuspili – og þaðan var haldið á Kaffi Rauðku þar Finnur Yngvi, verkefnisstjóri Rauðku, kynnti fyrir hópnum helstu framkvæmdir og framtíðaráform Rauðku
Þessa sömu helgi var haldin stór ferðakaupstefna á vegum IcelandAir í Reykjavík þar sem voru samankomnir starfsmenn ferðaskrifstofa víðsvegar úr heiminum. Á laugardeginum bauðst kaupstefnugestum að kynnast landi og þjóð betur í kynnisferðum, sem flestar allar fóru fram á Suðurlandi, nema ein sem fór alla leið norður á Siglufjörð. Hópurinn flaug frá Reykjavík til Akureyrar snemma morguns, þar beið þeirra rúta sem svo keyrði með hópinn beinustu leið á Siglufjörð.
Í sumar munu Iceland Air og Fjallasýn bjóða upp á slíka dagsferð til Siglufjarðar tvisvar sinnum í viku, auk þess sem hægt verður að óska sérstaklega eftir ferðinni fyrir hópa eða einkaaðila hvenær sem er.
Heimild: www.sild.is