Íbúaþing ungmenna í Fjallabyggð
Íbúaþing ungmenna í Fjallabyggð verður haldið í Menningarhúsinu Tjarnarborg á Ólafsfirði miðvikudaginn 9. maí kl. 17:00
- Hvetjum ungt fólk á aldrinum 14-25 ára að mæta og láta í ljós skoðanir sínar.
- Þú þarft ekki að vita neitt um pólitík, bara segja hvað ÞÉR finnst.
- Hvað finnst þér þurfa að leggja áherslu á í sveitarfélaginu? Hvað vantar?
- Rútuferðir í boði fyrir og eftir íbúaþingið (farið kl. 16:10 frá Siglufirði og til baka að þingi loknu).
- Þátttakendur fá svo Pizzu í lok þings.
Ungmennaráð Fjallabyggðar.