Í nóvember og desember síðastliðinn vann verktakafyrirtækið Ræktunarsamband Flóa og Skeiða að borun á nýrri heitavatnsholu við Langhús. Borunin tókst vel, borað var niður á 200 m dýpi og gefur holan um 6 lítra/sek af um 100°C heitu vatni. Virkjun holunnar gerir Skagafjarðarveitum kleift að hefja lagningu hitaveitu í Fljótum.
Mánudaginn 12. janúar síðastliðinn var haldinn opinn íbúafundur í félagsheimilinu Ketilási í Fljótum. Á fundinum kynntu Skagafjarðarveitur áform um hitaveituvæðingu í Fljótunum. Á milli 60 og 70 manns mættu á fundinn og ekki annað að sjá og heyra en að íbúar og sumarhúsaeigendur í Fljótum tækju væntanlegri lagningu hitaveitu fagnandi.
Myndir: www.skv.is