Íbúar Fjallabyggðar hreinsi frá niðurföllum og athugi dælur
Spáð er mikilli úrkomu næstu daga og eru íbúar Fjallabyggðar hvattir til að hreinsa frá niðurföllum og athuga með dælur í kjöllurum þar sem þær eru.
Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar hafa undanfarna daga gert varúðarráðstafanir, hreinsað og undirbúið dælur.
Íbúar skulu hafa samband við Neyðarlínuna 112 ef þörf er á aðstoð vegna flóða.