Hvalasafnið á Húsavík hlýtur erlendan styrk
Hvalasafnið á Húsavík hlaut ásamt Hvalveiðisafninu í New Bedford, Massachusettes í Bandaríkjunum, nýverið sameiginlegan styrk frá Bandarísku safnasamtökunum: American Alliance of Museums. Um er að ræða verkefnasjóð innan samtakanna sem ber heitið Safnatengsl (Museums Connect) og stuðlar að því að tengja saman ólíka menningarheima í gegnum safnasamstarf. Í fréttatilkynningu Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna og Bandarísku safnasamtakanna segir að árið 2015 sé um að ræða 15 samstarfssöfn, sem komi til með að mynda safnatengd ungmennaskipti með áherslu á umhverfis- og félagslegar breytingar. Þetta kemur fram á vef Hvalasafnsins.
Verkefni Hvalasafnsins á Húsavík og Hvalveiðisafnsins í New Bedford er til eins árs og miðar að því að tengja saman ólík samfélög sem eiga þó sameiginleg tengsl við hvali og hvalatengda menningu. New Bedford borg var á mestu hvalveiðiárum Bandaríkjanna kölluð “borgin sem lýsti upp heiminn”, þá aðallega vegna veiða á búrhval sem þekktastur var til vinnslu á lýsi til ljósanotkunar. Síðasti hvalveiðibáturinn lagði frá höfn í New Bedford árið 1927, en þá hafði rafmagnið rutt sér braut sem nútíma ljósgjafi. New Bedford búar eru stoltir af arfleifð sinni og ber borgin þess glögglega vitni, en auk þess er samfélagið sprottið frá ólíkum menningarheimum, þar sem meðal annars hvalveiðimenn frá Portúgal og Azoreyjum settust að á New England svæðinu á uppgangsárum hvalveiðanna.
Verkefnið verður unnið í samstarfi við Ungmennahúsið Tún á Húsavík og mun ungt fólk á hvorum stað fyrir sig vera í forgrunni. Hópur ungmenna á aldrinum 15-18 ára frá Húsavík annars vegar og New Bedford hins vegar mun mynda vinnuhóp (‚Ocean Crew‘). Auk þess að fá fræðslu um hvali, líffræði og vistfræði hafsins mun hópurinn kynna sig og bakgrunn sinn fyrir hverju öðru, kynnast sögu samfélaganna tveggja og kynna hana hvert öðru, kynna helstu kennileiti bæjarfélaga sinna og segja frá lífi unga fólksins á hvorum staðnum fyrir sig. Nemendurnir munu halda viðburði eins og lestrarmaraþon fyrir börn, fjölskyldu miðaðan Hvala-dag, auk þess sem þau munu halda úti verkefnisvefsíðu sem birtir stafrænar kynningar nemendanna. Verkefninu er skipt í þrjá hluta; kynningu á þátttakendum, nærumhverfi, söfnum og áhugaverðum staðreyndum og hugsjónum; sameiginleg verkefni og opinberar kynningar fyrir almenning í söfnunum; og að lokum ferðalög, þar sem ungmennin fá að hittast og eyða tíma saman, eftir að hafa þekkst í tæpt ár.
Heimild: Hvalasafn.is