Það eru margir forvitnir að vita hvað nýju íbúðirnar í gamla Gagnfræðiskólanum á Siglufirði muni kosta en verðin hafa nú verið gerð opinber. Opnuð hefur verið vefsíðan gagginn.is og er þar að finna allar þær upplýsingar sem hugsanlegir kaupendur þurfa. Það er ekki á hverju ári sem svo margar íbúðir koma á sölu í Fjallabyggð, en þetta er mjög spennandi verkefni fyrir Siglfirðinga og brottflutta sem vilja eignast íbúð á Siglufirði.
Minnsta og ódýrasta íbúðin er á jarðhæðinni og er 65 fm. og kostar 15 milljónir. Næstminnsta íbúðin er 69 fm. og er á 1. hæðinni en sú íbúð er seld. Stærsta íbúðin sem nú er auglýst til sölu er tæplega 149 fm og er verðtilboð á henni. Dýrasta íbúðin sem er auglýst nú með uppgefnu verði er rúmlega 112 fm sýningaríbúð á 2. hæð og er verðið á henni 39 milljónir. Söluaðili íbúðanna er Hvammur fasteignasala.
Húsið var teiknað hjá Húsameistara ríkisins undir umsjón Guðjóns Samúelssonar og var formlega tekið í notkun sem skólahús 6. október 1957. Breytingar hafa verið gerðar á innra fyrirkomulagi og auk þess bætt við þakkvisti og svölum. Breytingateikningar eru gerðar af Elínu Þorsteinsdóttir innanhússarkitekt og Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar ehf.

