Húsasmiðjan á Akureyri hefur gefið samfélaginu í Hrísey tvær nýjar hjólbörur, en þær eru mikið notaðar til að flytja farangur frá bryggju og í heimahús í Hrísey. Húsasmiðjan hafði gefið tvær hjólbörur í Hrísey fyrir nokkrum árum og var nú komið að endurnýjun.
Aron Pálsson rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar á Akureyri afhenti hjólbörurnar.