Í næstu viku leggur eikarbáturinn Húni II upp í siglingu hringinn í kringum landið með tónlistarfólk. Um er að ræða samstarfsverkefni Húna II, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Rúv. Áhöfnin á Húna er vel skipuð tónlistarfólkinu Jónasi Sig, Láru Rúnars, Mugison, Ómari Guðjónssyni, Guðna Finnssyni og Arnari Gíslasyni sem ætla að halda 16 tónleika í sjávarbyggðum landsins. Fyrstu tónleikarnir verða á Húsavík 3. júlí og þeir síðustu á Akureyri 20. júlí. Þá verður báturinn á Sauðárkróki 18. júlí og á Siglufirði 19. júlí og halda tónleika. Nánari dagskrá hér.
Rúv hefur ákveðið að fylgja siglingunni eftir með sjónvarps- og útvarpsþáttagerð og framleiddir verða 9 sjónvarpsþættir þar sem fylgst verður með ævintýrum áhafnarinnar auk útvarpsþátta á Rás 2.
Húna II þekkja allir Akureyringar en hann er 50 ára gamall eikarbátur sem smíðaður var í skipasmíðastöð KEA.
Heimild: akureyri.is