Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) hefur hafið samstarf við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið RetinaRisk um reglubundna augnskimun fyrir einstaklinga með sykursýki, með aðstoð gervigreindar. Lausnin gerir kleift að framkvæma skimun á heilsugæslu í nærsamfélagi í stað þess að senda skjólstæðinga til Reykjavíkur í augnskoðun.

Áætlað er að með notkun RetinaRisk lausnarinnar sparist að meðaltali um 99% af kostnaði miðað við að skjólstæðingar leiti til Reykjavíkur í reglubundna augnskoðun. Að auki sparist hundruðir ferðalaga á ári hverju, sem auðveldar fólki með sykursýki að fá þjónustuna sem hluta af sinni reglubundnu sykursýkiseftirfylgni á nærheilsugæslu.

RetinaRisk lausnin hefur þegar verið tekin í notkun hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) með góðum árangri, og nú fá íbúar á Norðurlandi tækifæri til að njóta sama ávinnings.