Í gær var haldinn hreystidagur í 1.-10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar í frábæru veðri. Nemendur og starfsfólk skólans nutu útiverunnar og fóru bekkirnir mismunandi leiðir á Siglufirði og í Ólafsfirði.
1.-5. bekkur fór í gönguferð um götur Siglufjarðar, 6.-7. bekkur í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði og 8.-10. bekkur á Kleifar í Ólafsfirði. Dagurinn heppnaðist vel og ekki skemmdi veðrið fyrir.
