Síldarminjasafnið á Siglufirði stendur fyrir viðburði, fimmtudaginn 31. október næstkomandi.
Grána tekur á sig hlutverk draugaverksmiðju um stundarsakir. Hugrakkar grímuklæddar verur eru boðnar í heimsókn og geta þær sem þora kannað hvar draugar og afturgöngur hafa hreiðrað um sig í verksmiðjunni.
Húlladúllan bregður sér í líki myrkranornar og leikur listir sínar með lifandi eld utandyra!
Grána verður opin gestum og gangandi frá kl. 17:00 – 19:00 fimmtudaginn 31. október.
Síldarkaffi verður opið fram á kvöld og þar geta gestir gætt sér á allskyns draugalegum veitingum; afturgengnum pylsum, afskornum fingrum og heilakökum svo eitthvað sé nefnt.
Börn yngri en 12 ára, og allir þeir sem hræðast drauga og afturgöngur, komi í fylgd fullorðinna.