Hótel Dalvík er til sölu á 420 milljónir króna, hótelið hefur verið á söluskrá undanfarin ár. Húsið er byggt árið 1973 og er 1314 fermetrar. Hótelið er miðsvæðis á Dalvík og er notalegt hótel í afslappandi umhverfi á Norðurlandi. Frá hótelinu er gott útsýni yfir Tröllaskaga. Á Hótel Dalvík eru 25 herbergi 2 – 3 manna með sérbaðherbergi – tvö herbergi 2ja manna með sameiginlegu baðherbergi – Svefnsalur með 6 rúmum með sameiginlegu baðherbergi – 1 herbergi fyrir fjóra með sameiginlegu baðherbergi – 6 herbergi 4-6 manna með sameiginlegum baðherbergjum ásamt aðgangi að setustofu með sjónvarpi, tveir bústaðir og eitt Deluxe herbergi.
Alls bíður Hótelið uppá 114 uppábúin rúm til útleigu. Öll herbergin eru með ókeypis þráðlausu interneti. Í gestamóttökunni er bar og setustofa með sjónvarpi.
Sameiginleg aðstaða er meðal annars garður og sólpallur með borðum og stólum.
Stóri morgunverðarsalurinn er tilvalinn fyrir ráðstefnur eða aðra viðburði.
Nánari upplýsingar á fasteignavef mbl.is.
