Karlakór Fjallabyggðar hefur vetrarstarf sitt mánudaginn 28. september næstkomandi, en fyrsta æfing vetrarins verður haldin klukkan 17:30 í Tónskólanum á Siglufirði.
Breyting verður á stjórn kórsins í vetur en Hörður Ingi Kristjánsson tekur við sem stjórnandi og mun sjá um vetrarstarf Karlakórs Fjallabyggðar 2026–2027. Edda Björk Jónsdóttir, stjórnandi kórsins, tekur sér frí frá kórstarfinu.
Tónlistin fylgt honum frá unga aldri
Hörður Ingi hefur fengist við tónlist frá unga aldri. Hann hóf píanónám í öðrum bekk og á unglingsárunum tók hann þátt í samspili í tónskólanum undir leiðsögn Guðmanns Sveinssonar.
Upp úr því varð til hljómsveitin Ronja og Ræningjarnir sem síðar þróaðist yfir í Ástarpungana. Hljómsveitin vakti meðal annars athygli þegar hún sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2020.
Hörður Ingi hefur einnig komið víða við í kórastarfi sem undirleikari. Hann hefur meðal annars leikið með Karlakór Fjallabyggðar, Sölkunum á Dalvík og Hyttunum í Fjallabyggð.
Hann útskrifaðist með stúdentspróf af tónlistarbraut Menntaskólans á Tröllaskaga og hefur auk þess verið virkur í tónlistarlífinu á Siglufirði. Á sumrin hefur hann meðal annars komið fram með Söltunargenginu þar sem hann hefur bæði sungið og leikið á harmonikku.
„Hef haft áhuga á þessu í mörg ár”
Hörður Ingi segist spenntur fyrir því að taka við stjórn Karlakórs Fjallabyggðar.
„Þetta leggst bara ljómandi vel í mig. Þetta er eitthvað sem ég hef haft áhuga á í mörg ár og ég er því mjög spenntur að fá að spreyta mig á þessu verkefni. Að vera í kór er einstaklega gefandi og í stuttu máli er ég virkilega spenntur,” segir Hörður Ingi.
Hann ætlar fyrst og fremst að leggja áherslu á gleðina sem fylgir söng og tónlist.
„Tónlist og söngur er eitthvað sem allir hafa gaman af og mitt helsta markmið er að hafa gaman af þessu og reyna að miðla því áfram hversu gaman það er að syngja og vinna með tónlist,” segir Hörður Ingi.
Nýir félagar velkomnir
Karlakór Fjallabyggðar býður nýja félaga hjartanlega velkomna í kórinn og eru þeir sem hafa áhuga á að koma og syngja með hvattir til að hafa samband við Hörð Inga.
Hægt er að hafa samband við Hörð Inga í síma 861 8340 eða með tölvupósti á: horduringi03@gmail.com.
Fyrsta æfing vetrarins verður mánudaginn 28. september klukkan 17:30 í Tónskólanum á Siglufirði.
Karlakór Fjallabyggðar býður Hörð Inga Kristjánsson hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til vetrarins.
Ljósmynd: Guðný Ágústsdóttir
Texti: Aðsend tilkynning.