Undanfarin ár hefur mikil endurnýjun húsnæðis og búnaðar átt sér stað á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík. Meðal annars var farið í mikla utanhússframkvæmd þar sem skipt var um þak á húsnæðinu og flesta glugga, auk þess sem húsið var múrað að utan.
Einnig hefur verið farið í minni framkvæmdir innanhúss, t.d. endurnýjun salerna, skipt um gólfefni í matsal og skipt út húsgöngum í matsal og dagdvöl o.m.fl. Þessar framkvæmdir voru styrktar af Framkvæmdarsjóði aldraðra (um 60%) og Dalbær hefur á móti greitt 40% af sínu rekstrarfé.
Dalvíkurbyggð kom rausnarlega að utanhússframkvæmdunum með miklum fjárstyrk. Nú er hugað að endurnýjun loftræstikerfis í eldhúsi, auk þess sem nauðsynlegt er að endurnýja brunaviðvörunarkerfi.
Í setustofu Dalbæjar, þar sem heimilisfólk kemur saman og horfir á sjónvarp, er hljóðkerfi sem á að getað flutt hljóð bæði í setustofu og matsal. Kerfið er komið til ára sinna og virkar ekki sem áður og er því komið er að nauðsynlegri endurnýjun þess.
Hugmyndir hafa einnig verið uppi um fjölgun sjónvarpa á sameiginlegum setusvæðum heimilisins.
Ákveðið hefur verið að hrinda af stað söfnun fyrir umræddum búnaði og ætla Hollvinasamtök Dalbæjar að aðstoða Dalbæ með söfnunina. Áætlaður kostnaður er 4,5 – 5 milljónir króna (búnaður og uppsetning).
Leitað er til velunnara Dalbæjar, einstaklinga og fyrirtækja, til að hjálpa Hollvinasamtökum Dalbæjuar að láta þetta verða að veruleika sem fyrst.
Hægt er að millifæra inn á reikning 0133-15-000265 kt: 640919-0510 eða hafa samband við í símanúmerin 840-7905 (Bensi – benedikt@nordfisk.is), 696-8787 (Rúna – runakristin@gmail.com).