Hollvinafélag HSN Fjallabyggð var formlega stofnað þann 24. febrúar 2026. Hugmyndin að stofnun félagsins hefur verið til staðar um nokkurt skeið en nú hefur hún loksins orðið að veruleika. Stofnun félagsins markar mikilvægt skref í að efla samfélagslega þátttöku og samstöðu um bætta heilbrigðisþjónustu í Fjallabyggð. Í því felst markmið félagsins; að auka gæði þeirrar þjónustu sem HSN í Fjallabyggð veitir og velferð íbúa á HSN í forgrunni.
Megintilgangur félagsins er að afla fjár með fjölbreyttum hætti, svo sem með viðburðum, styrkjum og öðrum fjáröflunum til kaupa á tækjum og búnaði fyrir HSN. Með þessu er stefnt að því að auka gæði þjónustunnar, bæta aðstöðu og styðja við faglegt starf innan stofnunarinnar til hagsbóta fyrir íbúa svæðisins.
Hollvinafélag HSN Fjallabyggð er því vettvangur fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja leggja sitt af mörkum til bættrar heilbrigðisþjónustu í nærumhverfinu.
Viðburðir verða auglýstir sérstaklega.
Stofnendur félagsins:
Örn Danival Kristjánsson
Þórey Sigurjónsdóttir
Valþór Stefánsson
Anna Gilsdóttir
Rósa Ólafsdóttir