Fjallahlaupið Súlur Vertical fer fram í 11. sinn á laugardaginn. Vinsældir þess hafa vaxið jafnt og þétt og var metþátttaka í fyrra með um 600 hlaupurum. Búist er við sama fjölda eða jafnvel fleiri hlaupurum í ár.

Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu mánuði og margir lagt þar gjörva hönd á plóg. Unnið hefur verið að leiðarvali og merkingum, undirbúningi fyrir skráningarkerfi og tímatöku, rætt við landeigendur og björgunarsveitir, einnig sveitarfélagið og lögregluna um götulokanir meðan á hlaupinu stendur, settar upp drykkjar- og hjálparstöðvar, unnið að kynningarmálum og svo mætti áfram telja. Verkþættir sem huga þarf að eru nánast óteljandi. Alls koma 6-8 manns að undirbúnignum með einum eða öðrum hætti.

Sjálfan hlaupadaginn, laugardaginn 1. ágúst, verða um 90 manns starfandi í kringum viðburðinn. Þar er um að ræða sjálfboðaliða á drykkjarstöðvum, björgunarsveitarfólk, rútubílstjóra og tímatökufólk. Mótstjórnin sjálf verður í viðbragðsstöðu allan sólarhringinn, sérstaklega vegna 100 km hlaupsins sem er ræst að kvöldi föstudagsins og fyrstu hlauparar koma ekki í mark fyrr en um hádegi daginn eftir. Fjórar vegalengdir verða í boði: Fálkinn (19 km), Súlur (29 km) og Tröllið (43 km) byrja í Kjarnaskógi en Gyðjan (100 km) við Goðafoss. Allir hittast í miðbæ Akureyrar að hlaupi loknu.