Eftir um árs pásu þá hefur hlaðvarpsþátturinn Á Tæpasta vaði aftur hafið göngu sína, en það er Guðmundur Gauti Sveinsson og Jón Karl Ágústsson sem halda úti þessi hlaðvarpi. Fyrsti þáttur í þriðju seríu er komin á Spotify veituna. Þeir félagar eru núna tveir með þáttinn eftir að rakarinn góðkunni gaf ekki lengur kost á sér eftir umtalaða þætti í síðustu seríu.
Þeir félagar áttu gott spjall í þessum fyrsta þætti og var flæðið á milli þeirra gott. Þeir fóru yfir nokkur af helstu málum líðandi stundar, ræddu lauslega um lóðamálið hjá Samkaupum, stöðu KF í 3. deildinni, samgöngur í Fjallabyggð og bæjarpólitíkina.
Þeir lofa öðrum þætti fyrir mánaðarmótin en eru ekki vissir hvernig dagskráin verður í júlí. Þátturinn er um 60 mínútur.
Hægt er að hlusta á þennan glænýja þátt á Spotify.