Á hverju skólaári tekur Verkmenntaskólinn á Akureyri á móti mörgum erlendum gestum sem koma til að skoða skólann. Fimmtudaginn 11. júní var þriggja manna hópur frá Grænlandi í heimsókn.

Nivi Olsen, mennta-, menningar-, íþrótta- og kirkjumálaráðherra Grænlands heimsótti VMA ásamt Kresten Lennert aðstoðarmanni ráðherra og Nuka Kleeman ráðuneytisstjóra. Þau eru á ferð um landið að heimsækja framhalds- og háskóla sem bjóða upp á fjarnám, dreifnám eða lotunám.

Gestirnir eru að skoða hvernig skólar á við VMA takast á við nám á dreifbýlum svæðum, sem er ein helsta áskorun þeirra á Grænlandi þar sem Grænland er afar strjálbýlt. Á Grænlandi eru um 9 framhaldsskólar með minni deildir á fleiri stöðum. Brottfall nemenda er ansi hátt segir Nivi, en þessi misserin eru um 30% – 50% ungmenna sem klára ekki framhaldsskóla þar í landi. Þetta eru þau að skoða frá grunni og heimsóknir sem þessar mikilvægar í því starfi að þróa kerfi sem virkar fyrir Grænlendinga. Þeim leist vel á VMA og sveigjanleikann sem skólinn býður upp á í fjölda námsgreina. Þetta er ekki fyrsta heimsókn Nivi til landsins, en sonur hennar hefur verið búsettur á Íslandi í nokkur ár.

Í gegnum tíðina hefur VMA átt samskipti við Grænland í gegnum Nordplus og Erasmus+. Á næsta skólaári stefnir hópur verknema í námsferð til Grænlands.