Heilsugæslan á Dalvík opnar heimasíðu
Heilsugæslustöðin á Dalvík hefur nú opnað nýja heimasíðu. Þar er að finna allar helstu upplýsingar um heilsugæsluna og þá þjónustu sem er í boði. Einnig er að finna öll helstu símanúmer og opnunartíma. Slóðin á heimasíðuna er www.hgdalvik.is/