Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð ætlar að ljúka árinu á því að bjóða íbúum sveitarfélagsins upp á tvö opin danskvöld sem haldin verða í menningarhúsinu Tjarnarborg sunnudagskvöldin 27. nóvember og 4. desember kl. 20:00. Danskennarinn Ingunn Hallgrímsdóttir verður á staðnum og kennir og leiðbeinir þátttakendum. Þátttaka er endurgjaldslaus og verður dansað í klukkutíma.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.