Aflatölur fyrir árið 2025 liggja nú fyrir í Fjallabyggð og jókst heildarafli sem landað var lítillega frá árinu 2024 en aflaverðmæti hefur hins vegar aukist umtalsvert á milli ára.

Landaður heildarafli á Siglufirði var 15.103 tonn árið 2025 í 1.240 löndunum á móti 14.926 tonnum árið 2024 í 1.266 löndunum.

Landaður heildarafli í Ólafsfirði var 64 tonn í 114 löndunum árið 2025 á móti 135 tonnum árið 2024 í 120 löndunum.

Samanlagt var landaður afli á árinu 2025 í Fjallabyggð 15.167 tonn á móti 15.061 tonnum árið 2024.