Hausttónleikar Tónlistarskólans á Tröllaskaga standa yfir næstu daga í Fjallabyggð og í Dalvíkurbyggð. Fjöldi nemenda stígur á sviðið og eru tónleikarnir öllum opnir.

Næstu tónleikar eru eftirfarandi:

  • 19. október í Bergi á Dalvík kl. 16:30 (Blandað)
  • 20. október í Ólafsfjarðarkirkju kl. 16:30 (Blandað)
  • 20. október í salnum á Siglufirði kl. 16:30 (Trommur)
  • 21. október í Víkurröst á Dalvík kl. 16:05 (Blandað)
  • 22. október í Víkurröst á Dalvík kl. 16:05 (Blandað)
  • 5. nóvember í Bergi á Dalvík kl. 17:00 (Blandað)