Hauststarfið hjá TBS hefst þriðjudaginn 25. ágúst. Foreldrar nýrra iðkenda er bent á foreldrasíðu TBS á fésbókinni. Yngri iðkendur geta æft allt að tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum. Greiðslur og skipulag fara í gegnum appið Abler, en TBS á eftir að stilla því upp. Þjálfarar verða Ikmal og Anna María, ásamt aðstoðarkrökkum.
Búið er að skipuleggja frístundarstarfið hjá 1.-4.bekk (2017-2020) og er svolítil breyting frá fyrri árum. 1.-2.bekkur (2019-2020) geta valið að æfa á þriðjudögum og fimmtudögum frá 13:40-14:40 og 3.-4.bekkur (2017-2018) geta valið að æfa á þriðjudögum og fimmtudögum frá 14:40-15:40.
Æfingagjöld fyrir þessar æfingar verða:
1x í viku = 14.000 kr.
2x í viku = 21.000 kr.
Æfingar fyrir 5. bekk og eldri verður nánar auglýst hjá TBS eftir helgina.