Í byrjun september byrjuðu haustæfingar Skíðafélagi Ólafsfjarðar. Þjálfari er Jónína Kristjánsdóttir og eru æfingar tvískiptar, annarsvegar fyrir börn fædd 2022-2017 og hinsvegar fyrir börn fædd 2016 og eldri. Skíðafélag Ólafsfjarðar býður nú öllum að koma á æfingar hjá félaginu án nokkurrar skuldbindingar til 15.október.
Æfingar eru með áherslu á þol, jafnvægi, samhæfingu og leikjum með markmikið að hafa gaman og njóta samveru inni og úti.
Yngri hópur æfir á sunnudögum og miðvikudögum. Eldri hópur æfir á sunnudögum, mánudögum og miðvikudögum.
Hægt er að skrá börnin á Abler.