Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamannvirkja og Vinnuskóla Fjallabyggðar lét af störfum um síðustu áramót fyrir sveitarfélagið Fjallabyggð. Haukur starfaði sem forstöðumaður íþróttamannvirkja síðustu 29 ár, fyrst fyrir Ólafsfjarðarkaupstað og síðar Fjallabyggð. Að auki hefur Haukur veitt Vinnuskóla Fjallabyggðar forstöðu  síðustu ár og þá hafði hann umsjón með Félagsmiðstöðinni Neon um árabil.

Haukur hefur verið einstaklega farsæll í starfi öll árin hjá Fjallabyggð og unnið ötullega að íþrótta- og tómstundalífi í sveitarfélaginu.

Skarphéðinn Þórsson hefur tekið við starfi forstöðumanns íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar.

Mynd með frétt frá vef Fjallabyggðar.