Harmóníkan hljómar í gegnum fjölbreytta efnisskrá
Ásta Soffía Þorgeirsdóttir frá Húsavík, Kristina Bjørdal Farstad frá Tennfjord í Noregi og Marius Berglund frá Moelv í Noregi hafa öll verið að læra saman á harmóníku í Norges musikkhøgskole. Þau halda ferna tónleika á Íslandi í sumar, og mánudaginn 14. ágúst verða þau í Siglufjarðarkirkju.
Lagavalið á tónleikunum er mjög fjölbreytt og stiklað er á stóru. Þau munu spila sóló, dúó og tríó verk frá öllum áttum. Meðal annars munu Marius og Kristina kynna hlið harmóníkunnar í þjóðlagatónlist Norðmanna sem birtist oft á tíðum í allskonar danstegundum. Þessi hlið harmóníkunnar er að mörgu leiti lík þeirri harmóníkumenningu sem hefur verið ríkjandi á Íslandi. Einnig verður leikin barrokk tónlist, rússnesk sígild harmóníkutónlist, nýlega skrifað skandinavískt tónverk ásamt fleiru. Með þessu munu þau miðla fjölbreyttri harmóníkutónlist og kynna margbrotnar hliðar harmóníkunnar.
Húsavíkurkirkju Reykjahlíðarkirkju
fimmtudaginn 10. Ágúst föstudaginn 11. Ágúst
klukkan 20 klukkan 19
Siglufjarðarkirkju Hannesarholti í Reykjavík
mánudaginn 14.ágúst fimmtudaginn 17. Ágúst
klukkan 19 klukkan 19