Velferðarnefnd Fjallabyggðar hefur samþykkt að hækka grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar einstaklinga um 14,8% en tillagan er að grunnfjárhæðin verði 232.000 kr, sem er nálægt meðaltali annarra sveitarfélaga utan höfuðborgarsvæðisins. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er ekki hugsuð til að mæta fullri framfærsluþörf einstaklinga og fjölskyldna til lengri tíma. Fjárhagsaðstoðin er fyrst og fremst tímabundin aðstoð þar til varanleg lausn finnst.
Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er skilgreind sem stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur í erfiðleikum til að mæta grunnþörfum.
Sérstök áhersla er á hagsmuni barna, félagslega þátttöku þeirra og valdeflingu umsækjenda. Félagsleg ráðgjöf, samráð og einstaklingsbundið mat hafa það að markmiði að styrkja sjálfshjálp og þátttöku í samfélaginu.