Gul viðvörun á Norðurlandi í dag

Gul viðvörun er á Norðurlandi í dag. Spáð er hvassri eða allhvassri norðanátt með ofankomu á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.

Norðan 13-18 m/s með rigningu eða slyddu nærri sjávarmáli, en snjókomu á heiðum á Norðurlandi frá kl. 18 í kvöld og til kl. 14 á sunnudag, en frá kl. 13 í dag á Norðurlandi vestra.

Erfið akstursskilyrði vegna takmarkaðs skyggnis og snjóþekju, sérstaklega á fjallvegum. Fólki er bent á að kanna aðstæður á vegum áður en lagt er af stað og fylgjast með veðri og veðurspám.