Gul og appelsínugul viðvörun verða í gildi á öllu Norðurlandi á 23.-24. desember. Fólk er hvatt til að fylgjast vel með tímasetningum varðandi veður næstu daga.

Síðdegis á morgun (Þorláksmessu) á að ganga í mikið og langvinnt sunnan hvassviðri, sem á að standa áfram á aðfangadag og enn nokkuð hvasst á jóladag.

Norðurland vestra 23. desember – Gul viðvörun

Sunnan 15-23 m/s, vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll. Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, einkum þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið.

Norðurland vestra 24. desember – Appelsínugul viðvörun

Sunnan 18-28 m/s, vindhviður geta farið yfir 40 m/s við fjöll. Hættulegt að ferðast vegna vinds, sérílagi fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir eru líklegir til að fjúka og staðbundið foktjón mögulegt.

Norðurland eystra 23. desember – Gul viðvörun

Sunnan 15-23 m/s, vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll. Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, einkum þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið.

Norðurland eystra 24. desember – Appelsínugul viðvörun

Sunnan 18-28 m/s, hvassast vestantil á svæðinu, vindhviður geta farið yfir 40 m/s við fjöll. Hættulegt að ferðast vegna vinds, sérílagi fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir eru líklegir til að fjúka og staðbundið foktjón mögulegt.