Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir er íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2025.
Guðbjörg er vel að titlinum komin en hún varð Íslandsmeistari kvenna í snocrossi árið 2025 og akstursíþróttakona ársins hjá Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambandi Íslands.

Hún var einnig valin nýliði ársins 2025 hjá Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambandi Íslands 2025.

Kjörinu á íþróttamanni Dalvíkurbyggðar var lýst við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Bergi á Dalvík.

Guðbjörg starfar sem gæðastjóri hjá Samherja á Dalvík.