Síðastliðinn mánudag fór Lögreglan á Norðurlandi eystra í lögregluaðgerð á Bakkafirði þar sem grunur var um framleiðslu fíkniefna og vopnalagabrot. Tveir aðilar voru handteknir en báðum sleppt að skýrslutökum loknum síðar sama dag.
Við húsleit fannst talsvert magn af ætluðum fíkniefnum, áhöldum til fíkniefnaframleiðslu ásamt skotvopni og skotfærum. Við þessa aðgerð naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Málið er í rannsókn og mun lögreglan ekki tjá sig nánar um það að svo stöddu.