Klukkan 16:22 í dag barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um efnaleka í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri. Lögregla og slökkvilið fóru á vettvang og var biðlað til fólks um að halda sig fjarri Óseyri á meðan unnið var á vettvangi.
Fjórir starfsmenn fiskvinnslunnar Hnýfils, leituðu aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Akureyri. Grunur leikur á að um klórgasleka sé að ræða.
Slökkvilið og lögregla hafa lokið störfum á vettvangi. Rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins.