Skólasetning Grunnskóla Fjallabyggðar fer fram miðvikudaginn 23. ágúst næstkomandi, stundaskrár og ritföng verða afhent nemendum. Nemendur 1. bekkjar mæta í boðuð viðtöl til umsjónarkennara. Skólastarf er undirbúið samkvæmt nýrri fræðslustefnu og munu nemendur 1.-5. bekkjar verða á Siglufirði og nemendur 6.-10. bekkjar í Ólafsfirði. Kennsla í 1.-5.bekk hefst kl. 8.30 en kennsla í 6.-10.bekk hefst kl. 8.10.
Skráðir nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar eru 196. Þar af eru 106 nemendur eru í starfsstöðinni á Siglufirði og 90 í starfsstöðinni í Ólafsfirði.
Nemendum í 1.-4. bekk stendur til boða að sækja Frístund að loknum skóladegi kl. 13.30-14.30. Frístund er tómstundastarf skipulagt af Fjallabyggð í samstarfi við tónlistarskóla, grunnskóla og íþróttafélög. Nemendur í 1.-3. bekk hafa möguleika á að sækja lengda viðveru kl. 14.30-16.00.
Samstarf Grunnskóla Fjallabyggðar við MTR hefur verið aukið. Nokkrir nemendur í unglingadeild sækja þar valgreinar (vélmennafræði og blak), sem er viðbót við ensku og grunnáfanga í náttúru- og félagsvísindum sem 10. bekkingar hafa getað stundað sl. ár.
50 starfsmenn mæta til starfa í haust, 32 kennarar og 18 aðrir starfsmenn. Meiri mannabreytingar eru nú miðað við síðustu ár. Sólveig Rósa Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri var ráðin 1. ágúst ásamt Ásu Björk Stefánsdóttur umsjónarkennara 5. bekkjar, Gurrý Önnu Ingvarsdóttur sérkennara og Gunnlaugu Björk Guðbjörnsdóttur sérkennara. Sigríður Ásta Hauksdóttir náms- og starfsráðgjafi verður í 20% starfi við skólann en hún mun einnig vinna við MTR.