Það var ánægjuleg stund í Grunnskóla Fjallabyggðar í vikunni þegar nemendum 10. bekkjar voru veitt verðlaun fyrir 2. sætið í Fjármálaleikunum 2023. Leikarnir, sem eru spurningakeppni milli grunnskóla í fjármálalæsi.  Þeir eru haldnir ár hvert og það eru nemendur í 8. – 10. bekk á Íslandi sem taka þátt.

Það var Elsa Guðrún Jónsdóttir, fulltrúi fjármálafyrirtækja á Íslandi, sem veitti nemendum verðlaunin, 100 þúsund krónur.

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur staðið sig vel í leikunum undanfarin ár en það er stærðfræðikennari unglingadeildar, Sigurlaug Ragna Guðnadóttir, sem heldur utan um keppnina í Fjallabyggð.

Myndir: Grunnskóli Fjallabyggðar