Grunnskólahúsið við Norðurgötu á Siglufirði verður 100 ára þann 18. desember næstkomandi. Húsið verður opið fyrir gesti og gangandi þann dag frá kl. 11-13. Nemendur í 1-4 bekk hafa unnið verkefni um gamla tímann sem verða til sýnis. Þá munu börnin syngja fyrir gesti kl. 11:15 og 12:30.