Í byrjun vikunnar fögnuðu grunnskólabörn í Fjallabyggð Degi íslenskrar náttúru og notuðu nærumhverfið til að fræðast.
Nemendur 1. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar fóru upp að Bakkatjörn þar sem þeir spiluðu náttúrubingó og fóru í frjálsan leik. Nemendur 2. – 3. bekkjar grunnskólans lögðu leið sína í Skógræktina á Siglufirði þar sem þeir fengu fræðslu um mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna og unnu verkefni sem tengdust náttúrunni.
Nemendur 4. bekkjar grunnskólans fóru í gönguferð upp í Skútudal á Siglufirði og nemendur 5. bekkjar fóru upp í Hvanneyrarskál.
Þetta kom fram í tilkynningu á vef skólans ásamt ljósmyndum.
