Skíðafélag Ólafsfjarðar hefur fjárfest í búnaði sem sýnir stöðu á skíðagöngubrautum í Ólafsfirði. Um er að ræða GPS tæki sem skráir inn stöðuna á rauntíma á vefsvæðið www.skidaspor.net á gönguspori í Ólafsfirði.  Með þessu geta áhugamenn um skíðagöngu fylgst með stöðu mála á netinu.