Síldarævintýrið fór í gang í gær og eru tjaldsvæði þegar orðin þétt bókuð, en enn er tekið á móti nýjum gestum. Í gær var íbúum og gestum boðið uppá grillveislu við Grunnskóla Fjallabyggðar og voru foreldrar frá Skíðafélagi Siglufjarðar að aðstoða við grillið. Góð mæting var á svæðinu og var setið í hverju sæti.  Síldarball var haldi á Segli 67 eftir grillið.
Í dag verða ýmsar listsýningar opnar og hoppukastalar,andlitsmálun og Nerfbyssur fyrir yngri kynslóðina. Skrúðganga verður að brennu við Norðurtanga í kvöld. Pub quiz verður á Segli 67 og tónleikar verða á Ráðhústorginu þar sem Landabandið og Leó og Steini halda uppi fjörinu. Danni og Kiddi verða svo á Rauðku í kvöld og þar er frítt inn.
Veðurspáin í Fjallabyggð er góð alla helgina og virðist straumurinn af fólki liggja á Norðurlandið.
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST
Kl. 10.00 – 17.00
Síldarminjasafn: Listsýning Ragnars Páls Einarssonar á Gránulofti
Kl. 14.00 – 17.00
Minningarsýning um Björn Steingrímsson frá Ólafsfirði
Gallerí Arcticglass, Eyrargötu 27
Kl. 14:00 – 15:00
Alþýðuhúsið – Listasmiðja fyrir börn og aðstandendur
Kl. 16.00 – 18.00
Íþróttahúsið á Siglufirði Hoppukastalar,
Nerfbyssur og andlitsmálun
Kl. 16.00 – 18.00 Alþýðuhúsið
Sýningaropnun í Kompunni
Listamaður: Anna Þóra Karlsdóttir
Kl. 19.15
Ráðhústorg – Skrúðganga að brennu á Norðurtanga
Kl. 19.30 – 20.30
Brenna á Norðurtanga
Kl. 21.00
Segull 67 – Pub quiz með Sigrúnu Sigurpáls
Kl. 21.00 – 22.30
Ráðhústorg – Landabandið heldur uppi fjörinu
Kl. 22.30
Ráðhústorg – Kveikt á blysum
Kl. 22.35 – 23.30
Ráðhústorg – Leó Ólason og Steini Bertu Sveins
Kl. 23.30
Rauðka – Trúbbastemming Danni og Kiddi – Frítt inn
Myndir með frétt koma frá stýrihópi um Síldarævintýrið á Siglufirði.