Golfmótið Sigló Open verður haldið á Hólsvelli á Siglufirði  laugardaginn 3. ágúst. Þetta er stærsta mót sumarsins hjá Golfklúbbi Siglufjarðar og er það einstaklega veglegt í ár. Spilaðar verða 18 holur og ræst af öllum teigum kl. 9:00 á laugardaginn n.k. Aðalstyrktaraðili mótsins er Aðalbakaríið á Siglufirði. Innifaldar eru veitingar að móti loknu.

  • Keppt í kvenna- og karlaflokki.
  • Forgjöf kk. 24 og kvk. 28.
  • Nándarverðlaun á par 3 holum.
  • Dregið verður úr skorkortum.
  • Mótsgjald 4.000 kr.
  • Aðalverðlaun eru ferðavinningar frá Icelandair.

Skráning á mótið á www.golf.is.  Einnig er hægt að skrá í mótið með tölvupósti á vefstjoriGKS@gmail.com eða í síma 660-1028.

Heimild: http://gks.fjallabyggd.is