Á öðrum fundi stýrihóps um fjárfestingar, framkvæmdir og viðhald í Fjallabyggð var m.a. tekið fyrir erindi um framkvæmdir við bráðabirgða golfskála í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði á vegum Golfklúbbs Fjallabyggðar. Um er að ræða fyrsta verkefni í aðgerðaráætlun samkvæmt framtíðarsýn sem samráðshópur um stefnumótun og framtíðarsýn í íþróttamálum setti fram.
Samþykkt hefur verið að veita Golfklúbbi Fjallabyggðar styrk upp á 10 milljónir króna, til þess að koma upp tímabundinni húsnæðisaðstöðu við Skeggjabrekkuvöll í Ólafsfirði, ásamt því að koma aðkomu- og bílastæðamálum í viðunandi horf við golfvöllinn.
Nokkrir mánuðir eru enn í að golftímabilið hefjist í Fjallabyggð, en fyrstu mótin eru í byrjun júní, eða þegar vallaraðstæður leyfa. Fylgst verður nánar með mótum sumarsins hér á síðunni í sumar eins og undanfarin ár og gerð verður skil á helstu mótum golfklúbbanna í Fjallabyggð.
