Á dögunum var undirritaður samningur milli Golfklúbbs Akureyrar og Siglo Golf um rekstur golfvallarins á Siglufirði. Golfklúbbur Akureyrar mun reka golfvöllinn eins og hér segir og mun hann vera einn af völlum félagsins. Samið hefur verið við Barðsmenn ehf um daglega umhirðu vallarins svo sem slátt og þess háttar. Barðsmenn munu einnig sjá um rekstur golfskálans og taka þar vel á móti gestum vallarins.

Róbert Guðfinnsson eigandi Siglo Golf segir að með þessu sé verið að tryggja gæði vallarins til frambúðar og auk þess með samningi GA og GKS verði aðgengi GKS tryggt eins og samið var um milli Siglo Golf og Leyningsás.

Í dag var svo samningur undirritaður milli Golfklúbbs Akureyrar og Golfklúbbs Siglufjarðar um aðgengi félaga GKS að vellinum.

GKS horfir fram á við þar sem nýir tímar og nýjar áskoranir munu koma og bjóðum við GA velkomið og lykillinn að þessu er gott samstarf. Þetta verður frábær viðbót að fá þekkingu GA varðandi umhirðu og uppbyggingu vallarins þar sem þeir þekkja svæðið vel og við vonumst til farsæls samstarfs.” segir Jóhann Már Sigurbjörnsson formaður GKS.

Steindór Kristinn Ragnarsson framkvæmdastjóri GA segist mjög ánægður með þennan samning og hlakkar mjög til samstarfsins við félaga GKS sem og Barðsmenn. Horft sé til þess að styrkja golfið enn frekar á Norðurlandi og efla það sem golfsvæði. GA hafi í gegnum árin verið í góðum samskiptum við klúbbana á svæðinu og horfir til enn frekari samstarfs. Golfsumarið líti vel út og því mikil tilhlökkun fyrir því. Það sé von okkar að félagar þessara klúbba muni nýta sér aðstöðuna hjá hvorum öðrum í frekari mæli. Golfvöllurinn komi ágætlega undan vetri, þó séu nokkrar flatir sem þarf að hjálpa en gert sé ráð fyrir opnun vallarins í júní byrjun líkt og fyrri ár.

 

Heimild og mynd: gagolf.is