Gjögurtáarviti stendur enn af sér skjálfta
Vitinn á Gjögurtá, austan Eyjafjarðar, virðist hafa staðið af sér miklar jarðskjálftahrinur sem gengið hafa yfir svæðið undanfarnar vikur og mánuði. Í sumar var sögð af því frétt að óttast væri um að vitinn hefði orðið fyrir skemmdum í jarðskálftahrinum en mikil skriðuföll urðu í fjallshlíðinni ofan vitans í júní. Landhelgisgæslan flaug þá yfir vitann til að skoða aðstæður úr lofti og einnig fékkst staðfesting frá bátum að vitinn lýsti enn.
Gjögurtáarviti er fjögurra metra hár, byggður árið 1970, og stendur tæpt á mjóum klettarana. Hann hallar lítilsháttar á stallinum þar sem hann stendur og hefur gert undanfarin ár.
Starfsmenn Vegagerðarinnar, sem fóru í árlega viðhaldsferð í síðustu viku um landið með Landhelgisgæslunni á varðskipinu Þór. Að þeirra sögn er allt í stakasta lagi ennþá þó vissulega halli vitinn eins og undanfarin ár, hann hafi þó lítið hreyfst í skjálftunum undanfarið.
Sinnt var hefðbundnu viðhaldi á vitanum og vonandi stendur hann áfram af sér komandi jarðhræringar.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
