Dagana 16.-28. desember síðastliðinn var opnað fyrir tillögur frá almenningi um götuheiti nýrrar götu á malarvellinum á Siglufirði þar sem áformað er að hefja framkvæmdir við nýbyggingar á árinu. Alls bárust 142 tillögur að nýju götunafni og eru það frábærar undirtekir.
Lagt hefur verið til að nýja gatan fái heitið Vallarbraut.