Gamli bærinn í Laufási opnar laugardaginn 1. júní kl. 9 og býður velkomna alla þá gesti, innlenda og erlenda, sem leggja land undir fót í sumar.
Sunnudaginn 2. júní er tilvalið að gera sér ferð í Laufás því kl. 14 – 16 verður handverksfólk úr Þjóðháttafélaginu Handraðnum að störfum í Gamla bænum og starfsfólk Pólarhesta koma með hesta og teyma undir ungum gestum á flötinni.
Ungir sem aldnir geta svo sest niður eftir góðan dag í Kaffi Laufási með þjóðlegt bakkelsi og yndislegt útsýni yfir fjörðinn.
Gamli bærinn í Laufási er í umsjón Minjasafnsins á Akureyri en í eigu þjóðminjasafnsins. Hann verður opinn í sumar daglega frá kl. 9 – 17 til 1. september.