Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði opnaði núna kl. 10:00 og verður opið til kl. 19:00. Færið í fjallinu er vorfæri og er hitinn um 8°. Fyrstu gestir dagsins eru þegar mættir.

Í Ólafsfirði er tilbúin skíðagöngubraut í Skeggjabrekkudal. Hringurinn þar er um 6 km, en þar hefur snjór minnkað vegna hita síðustu daga.