Mynd: Markaðsstofa Akureyrar / Auðunn Níelsson

Nýstofnuð ópera mun hefja starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins eða í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, með veglegum opnunarviðburði í haust. Að honum loknum verður sýningin flutt víðar um land.

Á opnunarviðburðinum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, einsöngvarar, kórar og leikarar leiða áheyrendur í gegnum helstu tímamót óperusögunnar og tengja við íslenska menningar- og hugmyndasögu. Ólafur Egilsson leikstýrir dagskránni í Hofi.

Sýningin er framleidd í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar sem rekur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag Akureyrar og Hof. Öll svið félagsins taka þátt í undirbúningi og framkvæmd opnunarsýningarinnar.

Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, segir það mikið gleðiefni að starfsemin hefjist í Hofi og að með því séu send skýr skilaboð um að óperan ætli sér að vera fyrir landið allt. Finnur Bjarnason, óperustjóri, tekur í sama streng og segir mikilvægt að landsmenn um allt land fái tækifæri til að kynnast starfseminni frá upphafi.