Kvennalið Dalvíkur/Reynis lék gegn Vestra á Dalvíkurvelli í dag í 2. deild kvenna. Dalvík/Reynir var í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir leikinn og Vestri í þriðja neðsta sæti. Það var því búist við jöfnum leik og mikilli baráttu.
D/R gat með sigri jafnað Vestra að stigum, en liðin eru einnig með svipaða markatölu.
Allt var í járnum í fyrri hálfleik og var ekkert mark skorað. Gestirnir komu að krafti inn í seinni hálfleik og skoruðu á 53. mínútu og komust yfir 0-1. Aðeins fimm mínútum síðar voru heimakonur búnar að jafna, staðan orðin 1-1.
Bæði lið gerðu svo nokkrar skiptingar en allt stefndi í jafntefli þegar Vestri skoraði sjálfsmark á 87. mínútu.
Fleiri mörk voru ekki skoruðu og vann D/R góðan sigur 2-1 og eru nú með 5 stig í deildinni, jafnmörg og Vestri og tveimur minna en Álftanes.