Fræðafélag Siglufjarðar hefur boðað til fyrsta fundar vetrarins sem haldinn verður í húsnæði Síldarminjasafnsins á Siglufirði, Síldarkaffi. Um er að ræða sjöunda fundinn frá því félagið var stofnað.
Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri og íbúi á Siglufirði fjallar um rannsókn sína á óstaðbundnum störfum, sem sífellt fer fjölgandi – og þau tækifæri og áskoranir sem þeim fylgja.
Fundurinn fer fram miðvikudaginn 30. október kl. 17:00 á Síldarkaffi og bjóðum við alla áhugasama hjartanlega velkomna