Fyrsta bikarmótið á Siglufirði eftir margra ára hlé hófst í morgun og lýkur á sunnudag. Það Sóley Birna Arnarsdóttir frá SSS sem var fyrsti keppandi í braut. Aðstandendur mótsins hjá Skíðafélagi Siglufjarðar eru afar ánægðir með vel heppnaðan dag.
Veðrið var frábært og umsjónarmenn skíðasvæðisins gerðu brekkurnar frábærar eftir erfiðan sólarhring.
Foreldrar SSS sáu um veitingasöluna í skíðaskálanum og voru í brekkunni við mótshaldið.
Þorgeir Bjarnason mótsstjóri stóð sig með mikilli prýði og stýrði þessu vel í dag.
