Aðfararnótt fimmtudagsins 6. ágúst mun Landsnet spennusetja Dalvíkurlínu 2. Til að hægt sé að vinna verkið þarf að taka Dalvíkurlínu 1 úr rekstri á meðan aðgerðin fer fram.
Af þeim sökum verður rafmagnslaust í Dalvíkurbyggð, þar að segja á Dalvík, í Svarfaðardal og Skíðadal, sem og í Hrísey, í allt að fjórar klukkustundir. Einnig verða tvær mjög stuttar rafmagnstruflanir í Ólafsfirði og á svæðum sem tengjast aðveitustöðinni á Árskógum.
Fyrirhugaðar truflanir verða sem hér segir:
Dalvíkurbyggð og Hrísey
Rafmagnslaust verður í Dalvíkurbyggð og í Hrísey frá kl. 00:05 til kl. 04:05 aðfararnótt fimmtudagsins 6. ágúst. Rafmagn kann þó að koma á í stuttan tíma meðan á prófunum stendur. Ekki skal líta á slíka tímabundna innsetningu sem merki um að framkvæmdinni sé lokið og viðskiptavinir eru beðnir um að gera ráð fyrir truflunum allan tímann.
Ólafsfjörður,  Árskógsströnd og Grenivík
Gera má ráð fyrir mjög stuttri rafmagnstruflun, eða blikki, einhvern tíma á milli kl. 23:00 og 23:59 miðvikudaginn 5. ágúst. Önnur stutt truflun verður í lok aðgerðarinnar, einhvern tíma á milli kl. 04:05 og 05:00 fimmtudaginn 6. ágúst. Ekki er um samfellt rafmagnsleysi að ræða á þessum svæðum, heldur stutt rof þegar tengingum er breytt í upphafi og lok aðgerðarinnar.
Þeim sem reiða sig á órofið rafmagn vegna viðkvæms búnaðar eða starfsemi er bent á að gera ráðstafanir vegna truflananna. Tímasetningar geta breyst ef ófyrirséðar aðstæður koma upp við framkvæmdina.
Nánari upplýsingar verða birtar á kortasjá á vef Rarik, rarik.is/rof. Einnig má hafa samband við þjónustuver í síma 528 9000.